Skip to product information
1 af 1

Royal Canin - Húðvandamál og ofnæmi

RC CCN Dog Mini Dermacomfort

RC CCN Dog Mini Dermacomfort

Sérpöntun

Þessi vara er eingöngu fáanleg sem sérpöntun. Sérpantanir verða tilbúnar til afhendingar/sendingar eftir 2–4 virka daga. Ef vara er ófáanleg frá birgja látum við þig vita um leið og möguleiki er á og endurgreiðum þér hana.

Listaverð 17.817 ISK
Listaverð Útsöluverð 17.817 ISK
Útsala Ófáanlegt frá birgja
Með VSK
Stærð

Vörulýsing

Þurrfóður fyrir fullorðna smáhunda eldri en 10 mánaða með viðkvæma húð og sem eru gjarnir á að klóra sér


Húð

Fóðrið er einstök blanda næringarefna, ómega-3 (EPA+DHA) og ómega-6 (GLA) sem styrkja ytri varnir húðarinnar og draga úr bólgum og kláða.

Andoxunarefni

Fóðrið inniheldur sambland andoxunarefna sem vinna að því að hlutleysa sindurefni og minnka þar með skaðsemi þeirra á líkamann.

Melting

Fóðrið hjálpar til við að draga úr vægum ofnæmiseinkennum með auðmeltanlegum formeltum próteinum (LIP), sérvöldum trefjum (m.a. psyllium) og góðgerlafæðu (FOS).

Fóðurkúlurnar

Lögun fóðurkúlnanna tekur tillit til kjálkastærðar og er með þeim hætti að hún hvetur hundinn til þess að tyggja en það minnkar hættuna á tannsteinsmyndun.

Heilbrigðir liðir

Fóðrið inniheldur bæði glúkósamín og kondróítin en bæði þessi efni leika lykil hlutverk í heilbrigðum liðum. Auk þess er í fóðrinu ómega-3 fitusýrur sem draga úr bólgum sem oft myndast í liðum.

Bragðgæði

Bragðgott og höfðar jafnvel til matvöndustu hunda en margir hundar af smáhundakyni glíma við lystarleysi.

Næringargildi

Prótein: 25.5% - Trefjar: 1.4% - Fita: 17%.

Skoða fulla lýsingu