1
         / 
        af
        1
      
      
    Royal Canin - Heilbrigð dýr
RC BHN Dog Golden Retriever Adult
RC BHN Dog Golden Retriever Adult
        
        
        Sérpöntun
      
    
    
  Þessi vara er eingöngu fáanleg sem sérpöntun. Sérpantanir verða tilbúnar til afhendingar/sendingar eftir 2–4 virka daga. Ef vara er ófáanleg frá birgja látum við þig vita um leið og möguleiki er á og endurgreiðum þér hana.
Listaverð
          
            22.807 ISK
          
      
          Listaverð
          
            
              
                
              
            
          Útsöluverð
        
          22.807 ISK
        
      
      
        Stykkaverð
        
          
          /
           per 
          
          
        
      
    Með VSK
  
Couldn't load pickup availability
Vörulýsing
Þurrfóður fyrir Golden Retriever eldri en 12 mánaða
Heilbrigt hjarta
Vandamál með hjarta hefur í gegnum tíðina verið þekktur veikleiki í Golden Retriever. Þetta hafa verið vandamál er snúa að ofstækkun hjartans sem verður þar af leiðandi með veikburða ytri himnu sem getur rofnað (e. Filated Cardiomyopathy; DCM) en sömuleiðis hafa greinst vandamál er snúa að þrengingum í vinstra slegli hjartans (e. Aortic Stenosis). Í fóðrinu eru efni sem stuðla að heilbrigðri hjartastarfssemi. Þessi efni eru fjölómettaðar ómega-3 fitusýrur, amínósýran tárín og L-karnitín en tvö síðasttöldu efnin leika hlutverk í heilbrigðum hjartavöðva á meðan ávinningurinn af ómega-3 fitusýrunum snýr meira að æðakerfinu.Heilbrigð þyngd
Aðlagað hitaeiningamagn stuðlar að viðhaldi heilbrigðrar þyngdar en Golden Retriever á það til að þurfa að glíma við of mikla þyngd sem setur aukið álag á liði hjá þessari stóru og fallegu tegund.Heilbrigðir liðir
Mjaðmalos og liðverkir eru þekkt einkenni Golden Retriever, sérstaklega þegar þeir eldast. Fóðrið inniheldur því bæði glúkósamín og kondróítin en bæði þessi efni leika lykil hlutverk í heilbrigðum liðum. Auk þess er í fóðrinu ómega-3 fitusýrur sem draga úr bólgum sem oft myndast í liðum.Heilbrigð melting
Fóðrið stuðlar að heilbrigðri meltingu og jafnvægi í þarmaflórunni. Aðlagað magn af auðmeltanlegum próteinum (LIP), trefjum og góðgerlafæðu (FOS) sem stuðla að bættri meltingu.Viðheldur og styrkir húð og feld
Styrkir náttúrulegar varnir húðarinnar með fjölómettuðum ómega-3 fitusýrum (EPA og DHA) en þær leika lykilhlutverk í öllum frumuhimnum líkamans, og með A-vítamíni og hjólkrónuolíu en öll leika þessi efni lykilhlutverk í heilbrigðri húð og feld.Fóðurkúlurnar
Kúlurnar eru sérstaklega hannaðar með Golden Retriever tegundina í huga. Sömuleiðis hvetur stærðin og lögunin Goldeninn til að tyggja og hafa þannig eðlilega meltingu þannig að það komi ekki of mikið magn fóðurs í magann of hratt - á þann hátt verður uppþemba í maga ólíklegri.Tannheilsa
Lögun fóðurkúlnana dregur auk þess úr tannsteinsmyndun því þær hvetja hundinn til að tyggja og því fá tennurnar ákveðna "burstun" frá fóðurkúlunum. Ennfremur er í fóðrinu kalkbindandi efni en kalk í munnvatni er einn stærsti þátturinn í myndun tannsteins.Næringargildi
Prótein: 25% - Trefjar: 1.4% - Fita: 14%.Share

 
          