Skip to product information
1 af 1

Royal Canin - Stuðningur við vaxandi dýr

RC SHN Dog Giant Junior

RC SHN Dog Giant Junior

Þessi var er almennt ekki til upp í hillu hjá okkar, en er ekkert mál að panta fyrir þig. Vörur sem ekki eru til á lager verða tilbúnar til afhendingar/sendingar eftir 2-4 virka daga.

Listaverð 22,958 ISK
Listaverð Útsöluverð 22,958 ISK
Ófáanlegt frá birgja
Með VSK
Stærð

Vörulýsing

Giant Junior fóður fyrir hvolpa af risahundakyni


Langt vaxtartímabil

Í risahundum er vaxtartímabilið langt og töluvert lengra en hjá flestum öðrum hundastærðum eða frá 8 mánaða aldri til 18/24 mánaða aldurs. Giant Junior fóðrið er sérstaklega ætlað risahundategundum á þessum aldri.

Með stórt hjarta og stóran líkama

Royal Canin Giant Junior fóðrið er sérstaklega gert fyrir hina vinalegu risa þegar þeir eru á síðara hvolpaskeiði. Hvolpar af slíkri stærð eru, vegnar stærðar sinnar, með stöðugt álag á liði og getur melting þeirra sömuleiðis verið viðkvæm enda er hlutfallsfallsleg stærð meltingarvegar minni en hjá minni hundategundum.

Stórar kúlur

Stór lögun fóðukúlnanna hvetur hvolpinn til að tyggja en slíkt auðveldar niðurbrot og meltingu. Sömuleiðis leiðir lengri tími í munni til þess að ólíklegra er að fóðurkúlurnar fari of hratt niður í maga og valdi uppþembu og vanlíðan.

Jafn vöxtur

Ef ójafnvægi er í orkuinnihaldi fóðurs geta hvolpar af risahundakyni vaxið of hratt og sett gríðarlegt álag á bein og liði. Fóðrun með Giant Junior tryggir jafna orku á þessu viðkvæma tímabili og stuðlar að því að beinþétting og samvöxtur liða sé í réttu hlutfalli við ákjósanlegan vöxt þessara fallegu risa.

Stuðningur við liði

Fóðrið er sérstaklega gert með það í huga að styðja við liðina með glúkósamíni, kondóitríni og EPA/DHA fitusýrum.

Andoxunarefni

Það er ríkt af andoxunarefnum til að stuðla að því að hlutleysa sindurefni og koma í veg fyrir skaða í frumum líkamans og styrkir þar með náttúrulega varnir líkamans.

Hjartaheilsa

Til þess að styðja við hjartaheilsu inniheldur fóðrið sérstaklega tárín, en tárín hjálpar til við að stjórna hreyfingu kalks í og úr frumum líkamans og hefur þar með bein áhrif á virkni hjartans.

Heilbrigð melting

Til þess að styðja við viðkvæma meltingu er fóðrið ríkt af hágæða auðmeltanlegum próteinum, blöndu af vatnleysanlegum og óvatnsleysanlegum trefjum og góðgerlafæði (MOS og FOS).

Stærð hunda

Fyrir hvolpa af risahundakyni sem eru á síðara hvolpatímabili (8-18/24; 24 mánuðir fyrir allra stærstu hundana) og vega fullorðnir 45 kg eða meira.

Næringargildi

Prótein: 31% - Fita: 16% - Trefjar: 1,3% - Sterkja: 29%

Skoða fulla lýsingu
Á vikna fresti
22,958 kr 20,662 kr

10% afsláttur á öllum áskriftarpöntunum. Hægt er að gera hlé á eða hætta við hvenær sem er, en þó ekki fyrr en eftir lágmark 2 pantanir.

Ertu nú þegar í áskrift? Sláðu inn netfangið þitt og við sendum þér hlekk til að bæta þessari vöru við.