Skip to product information
1 af 1

Royal Canin - Heilbrigð dýr

RC BHN Dog Cavalier King Charles Adult

RC BHN Dog Cavalier King Charles Adult

Þessi var er almennt ekki til upp í hillu hjá okkar, en er ekkert mál að panta fyrir þig. Vörur sem ekki eru til á lager verða tilbúnar til afhendingar/sendingar eftir 2-4 virka daga.

Listaverð 7.332 ISK
Listaverð Útsöluverð 7.332 ISK
Ófáanlegt frá birgja
Með VSK
Stærð

Vörulýsing

Þurrfóður fyrir Cavalier King Charles Spaniel hunda eldri en 10 mánaða


Hjartaheilsa

Inniheldur sérstaklega næringarefni sem styðja við hjartaheilsu Cavalier hunda en þessi hundategund hefur í gegnum tíðina haft veikleika er snúa að hjarta- og æðakerfi. Þessi efni eru m.a. tárín, fjölómettaðar ómega-3 fitusýrur (EPA & DHA), L-Karnitín og andoxunarefni sem öll leika þessi efni mismunandi en þó mikilvæg hlutverk í heilgbrigðu hjarta- og æðakerfi.

Heilbrigð þyngd

Fóðrið er sérstaklega hannað með það í huga að viðhalda heilbrigðri þyngd og hefur því magn hitaeininga verið lagað að lífsstíl Cavalier hundategundarinnar.

Viðheldur og styrkir húð og feld

Styrkir náttúrulegar varnir húðarinnar með ómega-3 fitusýrum, en þær leika lykilhlutverk í öllum frumuhimnum líkamans, og ómega-6 fitusýrum til þess að styðja við heilbrigða húð og feld Cavalier hunda.

Sérstök fóðurlögun

Fóðurkúlurnar eru sérstaklega hannaðar fyrir kjálka Cavalier hunda og hvetja þá til þess að tyggja, sem tryggir ákveðna "burstun" sem á móti stuðlar að minni líkum á tannsteinsmyndun og þar með bættri tannheilsu.

Heilbrigðir liðir

Inniheldur bæði glúkósamín og kondróítin en bæði þessi efni leika lykil hlutverk í heilbrigðum liðum Auk þess er í fóðrinu ómega-3 fitusýrur sem draga úr bólgum sem oft myndast í liðum.

Næringargildi

Prótein: 27% - Trefjar 2.8% - Fita: 14%.

Fjöldi í kassa: 6 stk.

Skoða fulla lýsingu
Á vikna fresti
7.332 kr 6.599 kr

10% afsláttur á öllum áskriftarpöntunum. Hægt er að gera hlé á eða hætta við hvenær sem er, en þó ekki fyrr en eftir lágmark 2 pantanir.

Ertu nú þegar í áskrift? Sláðu inn netfangið þitt og við sendum þér hlekk til að bæta þessari vöru við.