Skip to product information
1 af 1

Royal Canin - Stuðningur við eldri dýr

RC FHN Cat Outdoor 7+

RC FHN Cat Outdoor 7+

Sérpöntun

Þessi vara er eingöngu fáanleg sem sérpöntun. Sérpantanir verða tilbúnar til afhendingar/sendingar eftir 2–4 virka daga. Ef vara er ófáanleg frá birgja látum við þig vita um leið og möguleiki er á og endurgreiðum þér hana.

Listaverð 5.322 ISK
Listaverð Útsöluverð 5.322 ISK
Útsala Ófáanlegt frá birgja
Með VSK
Stærð

Vörulýsing

Þurrfóður fyrir útiketti eldri en 7 ára


Heilbrigðari öldrun

Hjálpar fullorðnum köttum eldri en 7 ára að takast á við byrjun á öldrunareinkennum. Inniheldur aðlagað magn vítamína, steinefna og annarra mikilvægra efna, m.a. grænt te, pólýfenól og C-vítamín sem eru allt sterkir andoxarar (þráarvarnaefni) og EPA/DHA fitusýrur sem smyrja liðina og draga úr verkjum.

Orkuríkt

Kettir sem fara út þurfa orkuríkara fóður. Outdoor þurrfóðrið uppfyllir orkuþörf útikatta enda er það orkuríkara en hefðbundið fóður fyrir inniketti.

Nýrnastarfsemi

Skert starfsemi nýrna er algeng í eldri köttum. Fóðrið inniheldur aðlagað magn fosfórs sem minnkar álag á nýrun og styður þar með við heilbrigða nýrnastarfsemi.

Heilbrigðir liðir

Í Outdoor þurrfóðrinu er nákvæm blanda af fjölómettuðum fitusýrum (EPA og DHA) sem smyrja liði og draga úr liðverkjum. Sömuleiðis inniheldur fóðrið glúkósamín og kondróítin en niðurstöður rannsókna á báðum þessum efnum gefa til kynna að þau séu liðuppbyggjandi og viðhaldi þar með heilbrigðum liðamótum.

Næringargildi:

Prótein: 28% - Fita: 20% - Trefjar 1.5% - Fosfór: 0.79% - EPA/DHA: 4 g/kg.

Fjöldi í kassa: 4 stk.

Skoða fulla lýsingu