{"product_id":"rc-dog-labradorpuppy","title":"RC BHN Dog Labrador Retriever Puppy","description":"\u003ch4 data-bind=\"tx: 'TitleDescription'\"\u003eVörulýsing\u003c\/h4\u003e\n\u003cp class=\"container-fluid\"\u003e\n\u003c\/p\u003e\u003cdiv data-bind=\"html: row().CalcDescription()\"\u003e\n\u003ch3\u003e Þurróður fyrir Labrador hvolpa til 15 mánaða aldurs \u003c\/h3\u003e \u003cbr\u003e\n\u003ch4\u003e Lengi býr að fyrstu gerð \u003c\/h4\u003e\nFrá því að hvolpar hætta að drekka hjá móður sinni er aukin hætta á vandmálum hjá hvolpum. Þetta \ngerist meðal annars vegna þess að ákveðna efna sem finna má i moðurmjólkinni nýtur ekki lengur við. \nÞetta er efni sem tilheyra ónæmiskerfi og ónæmisviðbrögðum likamans (Immunoglobulins; Ig). Það er \nþví mjög mikilvægt að eigendur og ummönnunaraðilar hvolpa sjái til þess að hvolpafóðrið sem gefið er\ninnihaldi efni sem brúa þetta bil að sem mest.\n\u003cbr\u003e \u003cbr\u003e \nHluti af Starf of Life pakkanum hjá Royal Canin snýr einmitt að þessum þætti - að búa hvolpa sem\nbest undir lífið með því að tryggja gott upphaf og að styrkja ónæmiskerfi hvolpanna!\n\u003cbr\u003e \u003cbr\u003e\n\u003ch4\u003e Styrking ónæmiskerfis og varnarviðbragða líkamans - heilbrigði meltingarvegar kemur fyrst!\n\u003c\/h4\u003e\nHvolpar eru með viðkvæmari meltingarveg heldur en eldri hundar. Viðkæmnin stendur lengi yfir þó \nstyrking eigi sér stað eftir því sem hvolpar eldast. Flestir eigendur eiga það til að skipta um\nfóður og færa yfir á fullorðinsfóður of snemma því í útliti er hvolpurinn jafnvel orðinn full vaxinn\nen þrátt fyrir það geta enn verið ákveðnir veikleikar í meltingarvegi. Mikilvægt er því að fara\neftir ráðleggingum sérfræðinga þegar kemur að fóðurskiptum.\n\u003cbr\u003e \u003cbr\u003e\nAllt hvolpafóður Royal Canin inniheldur auðmeltanleg, formelt prótein (LIP) sem eru ólíklegri til að\n valda ónæmisviðbrögðum í meltingarvegi. Sömuleiðis inniheldur hvolpafóður Royal Canin góðgerlafæði,\nbæði FOS og MOS, en FOS styrkir jákvæðar örverur í meltingarvegi og MOS dregur úr krafti neikvæðra \nörvera í meltingarvegi, hvorttveggja styrkir því varnir meltingarvegarins til mikilla muna.\nEnnfremur hefur verið lögð áhersla á andoxara sem hlutleysa sindurefni (oxara) og minnka þar með\nskemmdaráhrif sindurefnanna á líkamann. Sömuleiðis inniheldur Labrador hvolpafóðrið beta-\nglúkana en rannsóknir benda til þess að þeir styrkir ónæmiskerfið.\n\u003cbr\u003e \u003cbr\u003e\n\u003ch4\u003e Uppvöxtur \u003c\/h4\u003e\nAðlagað magn orku, próteina, kalks og fosfórs styður við heilbrigðan vöxt og þyngd Labrador hvolpa, \nen slíkt hefur áhrif á heilsu hundsins eftir því sem hann eldist. Mikilvægt er að allir eigendur og \nummönnunaraðilar gæti að þyngd Labrador hvolpa enda hættir tegundinni til að þyngjast með\ntilheyrandi álagi á liði.\n\u003cbr\u003e \u003cbr\u003e\n\u003ch4\u003e Heilbrigðir liðir \u003c\/h4\u003e\nFóðrið inniheldur bæði glúkósamín og kondróítin en bæði þessi efni leika lykil hlutverk í\nheilbrigðum liðum. Auk þess er í fóðrinu ómega-3 fitusýrur sem draga úr bólgum sem oft myndast\ní liðum en eitt stærsta vandamálið sem hundar af stórhundakyni glíma við snýr að liðheilsu - alltof\nmargir hundar glíma að óþörfu við liðverki og mjaðmalos.\n\u003cbr\u003e \u003cbr\u003e\n\u003ch4\u003e Fóðurkúlurnar \u003c\/h4\u003e\nStærð, lögun, áferð og innihald fóðurkúlanna sérstaklega hannað fyrir lífsstíl og hegðun Labrador\nhvolpa.\n\u003cbr\u003e \u003cbr\u003e\n\u003ch4\u003e Næringargildi \u003c\/h4\u003e\nPrótein: 33% - Trefjar: 1.7% - Fita: 14%.\u003c\/div\u003e\n\u003cp\u003e\u003c\/p\u003e","brand":"Royal Canin","offers":[{"title":"12 kg","offer_id":53257462612336,"sku":"NI-DH-R266520","price":22075.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0954\/5488\/8304\/files\/Untitled-1_2000x_387694ba-7569-47be-be0f-9169e5df9c11.png?v=1778359300","url":"https:\/\/www.animalia.is\/products\/rc-dog-labradorpuppy","provider":"Animalía Vefverslun","version":"1.0","type":"link"}