Neonate formula

name-neo.jpg

 

 Handmötunarfóður fyrir alla páfagaukaunga

 

neo.jpg

Ábendingar:

•    Auðmelt handmötunarfóður sem uppfyllir allar næringarþarfir páfagaukaunga frá klaki og til 1-3 vikna aldurs
•    Auðmelt næring fyrir alla unga fugal.
•    Ungunum líkar vel jöfn áferð blöndunnar þar til þeir fara að borða sjálfir
•    Handmötunarfóður og uppeldisfóður frá klaki til flughæfni hjá spörfuglum s.s. svölum, söngvurum, lævirkjum, spætum, söngspörvum, finkum o.fl.


Fóðrunarleiðbeiningar:

ATH!  Nauðsynlegt er að beita réttri tækni við handmötun til að skaða ekki fuglinn.  Óvanir ættu ekki að reyna handmötun án leiðsagnar.  Röng tækni getur valdið sárum í munnholi eða innöndun á fóðri, sem aftur getur leitt til lungnabólgu og dauða fuglsins.  Ef notuð er slanga þarf að tryggja að fuglinn skemmi ekki slönguna. Eftirfarandi leiðbeiningar eru ekki ætlaðar til að fólk prófi sig áfram heima með handmötun, heldur sem stuðningur við þá sem hafa fengið leiðsögn.
1.    Þreifið á sarpinum til að tryggja að hann sé næstum tómur áður en fóðrun hefst
2.    Blandið 1 hluta Neonate Formula á móti 1-3 hlutum af 39°C heitu soðnu vatni (blöndun formúlunnar fer eftir aldri ungans).  Hitið ekki í örbylgjuofni.  Látið kólna að líkamshita.
3.    Að fóðra með handmötunarnál og sprautu er sennilega algengasta aðferðin til handmötunar.  Staðsetjið nálina þannig hún fari inn í munnholið á vinstri hlið goggsins og beinið henni í átt að háls fuglsins hægra megin.  Setjið matinn í munn fuglsins og þegar hann kyngir, á eðlilegt viðbragð að loka fyrir barkann og hindra að fóður fari í lungun.
4.    Fóðrið fuglinn þar til sarpurinn er fullur en ekki úttroðinn.  Þrífið fóðurleifar af fuglinum, gogg og fjöðrum.  Fóðrið eins oft og þarf til að viðhalda eða auka líkamsþyngd fuglsins.
5.    Litlir páfagaukar sem eru eldri en 21 daga og stærri tegundir sem eru eldri en 7 daga ætti að fóðra með Juvenile handmötunarfóðrinu.


Geymsla og líftími:

Eitt af markmiðunum með Harrison´s fuglafóðri er að hlífa fuglinum þínum við aukefnum. Hér eru nokkrar tillögur að því hvernig halda skal fóðrinu fersku:
•    Lyktið af fóðrinu áður en fóðrað er.
•    Þrýstið öllu lofti úr pokanum og rennið honum aftur að ofan.
•    Ef rennilásinn bilar eða er fjarlægður, brjótið pokann þá saman nokkrum sinnum að ofan og lokið með klemmu.
•    Geymið fóðrið í upprunalegu umbúðunum. Ekki endurpakka í plastpoka eða dunka.
•    Notið innihaldið innan fjögurra til sex vikna eftir að pokinn er opnaður.
•    Kaupið Harrison´s fóður aðeins í upprunalegum umbúðum.
•    Hægt er að viðhalda ferskleika fóðursins með því að geyma það í ísskáp eftir að pokinn er opnaður.


Innihaldsefni:

Sojaprótín, sólblómaolía með háu innihaldi af olíusýru, kornsterkja, sykur, kalsíum karbónat, kalíumklóríð, díkalsíumfosfat, fosfatadylkólín, vítamín (A-vítamín, D3-vítamín, dl-alfatokoperilacetat, B12-vítamín, ríbóflavín, d-kasíumpantothenate, níasín, pyridoxínhydroklórið, d-bíotín, þíamínmónónítrat, fólínsýra, sinksulfat, mangansulfat, koparsulfat, natríumselenít, kalsíumkarbónat, grænmetisolía), metþíónín, E-vítamín.